Þetta er roooooooooooosssssssssssaaaalegt, það finst bara flestum nýja lúkkið vera gult eða eins og hjá Völu Matt (hvar fékstu þetta)
En það sem er mér nú í huga er þessi þraut sem ég rakst á það er allveg sama hvernig ég reikna ég fæ aldrei rétta niðurstöðu REYNDU...........
Þrautin í heild er sem hér segir:
Þrír strákar ætla að kaupa bolta á 30 kr. og leggja til 10 kr. hver. Senda einn pabbann í búðina en þá sér hann að boltinn kostar bara 25 krónur. Hann kaupir boltann en kann engin ráð til að skipta 5 kr. í þrennt. Hann lætur því strákana fá eina krónu hvern en heldur sjálfur eftir 2 kr. Nú hefur hver strákur greitt 9 krónur fyrir boltann eða samtals 3*9=27 kr. og pabbinn hélt eftir 2 krónum. Hvar er þá ein króna?
Sjálfsagt er að svara svona þrautum sem reyna á rökhugsun og bera með sér ákveðinn boðskap. -- Hér er spurningunni í raun og veru snúið við í endann, sem sést best af því að athuga hvað varð um krónurnar 30 sem strákarnir létu pabbann fá í byrjun:
Greitt í búðinni fyrir boltann: 25 kr.
Greitt strákunum til baka: 3 kr.
Rennur í vasa pabbans: 2 kr.
Alls: 30 kr.
Villan sést einnig með því að rekja hvað verður um krónurnar 27 sem strákarnir borga í raun og veru. Af þeim renna 25 til kaupa á boltanum en tvær í vasa pabbans.
Hugsunarvillan er í lokaorðum spurningarinnar því að pabbinn heldur eftir 2 krónum af krónunum 27 sem strákarnir greiddu honum en ekki til viðbótar við þær. Villur af þessu tagi koma stundum fyrir fólk ef það gætir ekki að sér.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home